Vont orðið verra, Vesturbakkinn og hagsmunirnir við Hítará
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, vonar að komið sé að vendipunkti í þessari umræðu. Heilbrigðiskerfið hafi verið vanfjármagnað í lengri tíma og í því samhengi nefnir hún skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítalann sem kom út fyrir rúmu ári. Þar hafi verið bent á lausatök og úrræðaleysi, að yfirsýn skorti og fjármagnaða heildaraðgerðaáætlun.
Það vita færri - en þó allir sem vilja - að staðan á hernumdum Vesturbakkanum er líka skelfileg þótt hún sé til allrar hamingju fjarri því jafn slæm og á Gaza. Þar halda Ísraelar áfram að ræna landi Palestínumanna sem Ísraelum, sem hernámsaðilum, ber þó skýr lagaleg skylda til að verja. Þvert á móti leggjast þar allir á eitt, Ísraelsher, ísraelsk stjórnvöld og svo landræningjarnir sjálfir, bæði þeir um það bil 700.000 sem fyrir eru og þeir sem hyggja á nýtt landrán
Allt frá því að gríðarstór skriða féll í Hítará árið 2018 hefur verið rætt um hvort tilefni sé til að endurheimta fyrri farveg árinnar. Skriðan er farartálmi fyrir laxa á leið heim á hrygningarstöðvarnar og nýi farvegurinn er torfær fyrir laxinn. Kostnaðurinn við að grafa gegnum skriðuna gæti hlaupið á hundruðum milljóna en fyrir landeigendur í dalnum eru talsverðir hagsmunir í húfi.
Birt
6. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.