Spegillinn

Heimskreppa, einkunnir grunnskólanema og vöktun Landhelgisgæslu

Árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran hefur skilað helstu olíurisum heimsins sem svarar 90 milljörðum króna aukahagnaði á degi hverjum frá því það hófst, um 2.700 milljörðum á mánuði. Ástæðan er mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu vegna lokunar Hormússunds og óvissu í olíuframleiðslu og -flutningum, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við alheimskreppu óbreyttu, það er, ef ekki tekst binda enda á stríðið hið snarasta. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra fór vítt og breitt þegar hún ávarpaði þing Kennarasambands Íslands í gær. Mesta athygli hafa ummæli hennar um einkunnagjöf vakið. Foreldrar hefðu meðal annars bent á erfitt væri geta ekki farið yfir próf barna sinna til átta sig á stöðu þeirra og vildu meira gagnsæi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta við Þórunni Sif Böðvarsdóttur kennara.

Ógnir sem Landhelgisgæsla Íslands þarf bregðast við eru orðnar fjölbreyttari og flóknari en áður. Þar vega þungt GPS-truflanir, tilraunir skipa til senda rangar staðsetningarupplýsingar og aukin umferð svokallaðs skuggaflota nærri íslenskri lögsögu. Heimsmyndin er breytt og ógnirnar aðrar, segir Auðunn Kristinsson í viðtali við Ingólf Bjarna Sigfússon,

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt

16. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,