• 00:00:20Glæpir Ísraela gegn palestínskum börnum
  • 00:07:42Miðlun og áróður í aðdraganda ESB atkvæðagreiðslu

Spegillinn

Glæpir Ísraela gegn palestínskum börnum, upplýsingamiðlun og áróður í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu

„Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar á börnum hafa verið framin á milli 23. október 2023 og 23. október 2025,“ sagði Srinivasan Muralidhar, formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á hernumdu svæðunum í Palestínu. Nýjasta skýrsla nefndarinnar fjallar sérstaklega um stöðu barna á hernumdu svæðunum og niðurstaðan er blátt áfram hryllingur. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið.

Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram mjótt er á munum milli þeirra sem hallast því segja og þeirra sem ætla segja nei.

Heldur fleiri segjast öruggir um jáið eða 39% en 35% segjast örugglega munu segja nei. Könnunin var gerð 12. til 24. júní. 26% eru ekki alveg afdráttarlaus en 13% segjast líklega munu segja og 13% eru á því líklega verði neiið ofan á. Það eru væntanlega þessi 26%, sem eru ekki tilbúin til segjast örugglega ætla kjósa svona eða hinsegin, sem barist er um í sumar. En hvar sleppir upplýsingum og áróðurinn tekur við? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt

30. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,