• 00:00:00Upphaf
  • 00:00:15Viðbrögð við hamförum
  • 00:10:14Strandveiðin brothættur búskapur
  • 00:19:30Kveðja

Spegillinn

Viðbrögð við hamförum, strandveiðar

Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og skýrum áætlunum þegar almannavarnastigi er lýst yfir er meðal þess sem starfshópur dómsmálaráðherra um viðbrögð vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á í áliti sínu, sem birt var í morgun. Viðbragðsaðilar eru þó sagðir hafa unnið þrekvirki og tekið fram það þeim þakka ekki fór verr. Alma Ómarsdóttir ræðir niðurstöður nefndarinnar og viðbrögð við þeim við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.

Eigendur 820 báta hafa tryggt sér rétt til strandveiða og 583 bátar eru komnir á sjó. Í reglugerð segir veiðarnar megi stunda í 12 daga innan hvers mánaðar, 48 daga samtals. Undanfarin sex ár hafa sjómenn hins vegar ekkii getað klárað leyfilegt strandveiðitímabil því tiltækar veiðiheimildir klárast jafnan áður en komið er lokadegi. Þetta eru sjómenn ósáttir við, eog þeim brá líka í brún þegar úthlutun fyrir þetta sumar var minni en í fyrra. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta, en hann fór á bryggjurölt og hitti sjómenn máli.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt

13. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,