• 00:01:00Afarkostir Bandaríkjaforseta
  • 00:09:50Gervigreind miskunnarlaust notuð

Spegillinn

Afarkostir Bandaríkjaforseta í Íransstríði og gróf notkun á gervigreind

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn á samfélagsmiðli sínum og skrifaði svo gæti farið siðmenningu í Íran yrði tortímt í nótt og hún risi aldrei aftur upp. Hann vildi það ekki en það væri líklegt. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir taka verði yfirlýsingar Trumps alvarlega en telur þær endurspegla gremju forsetans yfir óvæntum gangi stríðsins við Íran.

Þýskaland hefur nötrað eftir þekkt sjónvarpskona steig nýverið fram og upplýsti eiginmaður hennar fyrrverandi hefði búið til og deilt grófum djúpfölsuðum myndskeiðum af henni á netinu. Drífa Snædal talskona Stígamóta hefur þá tilfinningu fólk orðið samdauna stafrænu ofbeldi en segir íslensk stjórnvöld hafa sýnt mikla framsýni með því lögfesta hér ákvæði um kynferðislega friðhelgi.

Birt

7. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,