• 00:00:10Kosningar í Danmörku
  • 00:11:12Fundur utanríkismálanefnd

Spegillinn

Kosningar í Danmörku, ESB-umræður í utanríkismálanefnd

Sósíaldemókratar - jafnaðarmenn - eru enn stærsti flokkurinn en töpuðu allra flokka mest af fylgi, 6.5 prósentum, og fengu rétt tæp 22 prósent atkvæða, sem er versta útreið sem þeir hafa fengið frá 1903. Venstre - hægriflokkurinn sem var með þeim í ríkisstjórn, tapaði líka miklu og fékk verstu kosningu frá stofnun flokksins, eða 10,1 prósent. Þriðji stjórnarflokkurinn tapaði mun minna fylgi en tapaði þó. Það breytir því þó ekki formaður hans er með pálmann í höndunum eftir kosningarnar. Borgþór Arngrímsson segir Ævari Erni Jósepssyni hvers vegna það er.

Utanríkisráðherra ítrekaði á fundi utanríkismálanefndar í morgun hvorki formlegar óformlegar viðræður væru hafnar við Evrópusambandið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vildu öll gögn upp á borðið um samskipti við ráðamenn í Brussel, og formaður Miðflokksins vildi vita hvort forystumenn ESB vissu um hvað ætti kjósa síðsumars. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt

25. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,