Pollrólegur sjúkrahússforstjóri í Ryadh og kjarnorkuvopn Frakka
Sérfræðingar óttast að ófriðarbál í Miðausturlöndum breiðist út. Forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Ryadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, er pollrólegur þótt dróna hafi verið skotið á sendiráð Bandaríkjanna í borginni.
Næsta hálfa öldin verður tímabil kjarnorkuvopna, sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti í ræðu sem hann flutti á aðalkafbátastöð franska flotans, heimahöfn þeirra kafbáta sem búnir eru stýriflaugum sem borið geta kjarnaodda. „Ef við ætlum að vera frjáls," sagði forsetinn, „þá þurfum við að vera ógnvekjandi." Og vænlegasta leiðin til þess, samkvæmt honum, er að uppfæra og stækka kjarnorkuvopnabúr landsins.
Samband Bandaríkjanna og Bretlands hefur löngum verið talið sérstakt og þannig til þess vísað af ráðamönnum beggja þjóða. Það samband virðist nokkuð að súrna. Bresk stjórnvöld leyfðu ekki not af breskum herstöðvum þegar Bandaríkin réðust á Íran um helgina og Keir Starmer forsætisráðherra Breta sagðist ekki trúaður á stjórnarskipti af himnnum ofan.
Birt
3. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.