Púðurtunna að springa í Mið-Austurlöndum og Davíðs Oddssonar minnst
Átök í Miðausturlöndum hafa breiðst út frá því Bandaríkin og Ísrael gerðu árás á Íran á laugardag og drápu erkiklerkinn Ali Khameni. Ísraelar gerðu árásir á Teheran höfuðborg Írans aftur í dag og Íranar hafa gert árásir víða og til átaka hefur komið í Líbanon milli Hezbolla og Ísraela. Oft hefur verið talað um Miðausturlönd sem púðurtunnu, kveiktu árásirnar um helgina í tundrinu, rætt við Kjartan Orra Þórsson sérfróðan um málefni Írans og Svanhildi Þorvaldsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og dósent við HÍ.
einn áhrifamesti og umdeildasti stjórnmálamaður Íslands, Davíð Oddsson lést í gær, Fáir hafa sett jafn mikið mark á íslensk stjórnmál. Rætt við Illuga Gunnarsson og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Birt
2. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.