• 00:00:00Kunnugleg hreinsun hafin á kjörnum fulltrúum
  • 00:08:50Pakistan í stríð við Afganistan
  • 00:14:50Ferðasaga (Úkraína)

Spegillinn

Kjörnir fulltrúar hreinsaðir út, stríð milli Pakistan og talíbana og ferðin til Kænugarðs

Stjórnmálaferill fólks er verða styttri og styttri og það færist í vöxt flokkarnir leiti út fyrir sínar raðir. Stjórnmálaprófessor segir lítið hafa verið gert úr stjórnmálastarfi í þjóðmálaumræðunni.

Stjórnvöld í Pakistan lýstu í morgun formlega yfir stríði gegn nágrannaríkinu Afganistan og undirstrikuðu ásetning sinn með loftárásum á herbækistöðvar talibana í nokkrum stærstu borgum landsins, þar á meðal höfuðborginni Kabúl. Loftárásirnar voru viðbrögð Pakistana við samstilltum árásum afganskra hermanna á pakistanskar varðstöðvar í sex landamærahéruðum í gær. Þær árásir voru aftur viðbrögð talibanastjórnarinnar við loftárásum Pakistana á meintar bækistöðvar hryðjuverkasveita hinumegin landamæranna - og svo koll af kolli.

Leiðtogar Evrópusambandsins og níu þjóðríkja, þar á meðal Íslands, lögðu land undir fót á mánudaginn til vera viðstödd atburði í höfuðborg Úkraínu á þriðjudag; daginn þegar rétt fjögur ár voru liðin frá því allsherjarinnrás Rússa hófst. Björn Malmquist fréttamaður skráði þessa ferð í sögubækur samtímans.

Birt

27. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,