• 00:00:13Samgönguáætlun
  • 00:06:20Sjálfsákvörðunarréttur Grænlands
  • 00:13:27Líðan Grindvíkinga

Spegillinn

Innviðaráðherra og ákvörðunin um Fjarðagöng, sjálfstæðisbarátta Grænlendinga og könnun á búsetu Grindvíkinga

Innviðaráðherra viðraði áhuga sinn á Fjarðagöngum strax síðasta sumar. Hann virðist hafa slegið Fjarðarheiðargöng út af borðinu í september. Vegagerðin staldraði við hugmyndir ráðherrans um rannsakaðir yrðu þrír nýir jarðgangakostir á Vestfjörðum. Eyjólfur Ármannsson var ekki búinn sitja lengi í stól ráðherra þegar starfsmenn ráðuneytisins óskuðu eftir minnisblaði frá Vegagerðinni um forgangsröðun jarðganga.

Aðjúnkt við Háskóla Grænlands segir samskiptin við Danmörku og umræðan um Trump og Bandaríkin hafi tekið dýrmætan tíma frá öðrum þjóðhagslega mikilvægum málum Grænlendinga. Þá hafi þetta haft mikil áhrif á almenning í Grænlandi, börnin ekki síst. Slagurinn við Trump ef til vill enn ein birtingarmynd á sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga.

Meirihluti þeirra sem bjuggu í Grindavík þegar bærinn var rýmdur í hitteðfyrra hefur sest annars staðar. 10% búa núna í Grindavík. 15% Grindvíkinga sem ekki búa í bænum telja líklegt þeir flytji þangað aftur í ár, en 73% segjast geta hugsað sér búa áfram þar sem þeir búa nú, næstu árin. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Grindavíkurnefnd í vetur.

Birt

16. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,