• 00:00:04Eurojust um smyglhring
  • 00:05:33Formaður Eflingar um leikskólamálin
  • 00:13:45Smábátaútgerð í deiglu

Spegillinn

Fjölþjóðlegur smyglhringur upprættur, vandi leikskóla í Reykjavík og smábátaútgerð

Lögregla á Íslandi og meginlandi Evrópu, handtók í liðinni viku tuttugu og fjóra menn í samræmdum aðgerðum gegn hópi glæpamanna sem smygluðu kókaíni frá Suður-Ameríku til Spánar og þaðan áfram til Íslands. Handtökurnar voru afrakstur nær eins árs rannsóknar lögreglu á Íslandi og í Litáen, í samstarfi við hvorutveggja Europol og Eurojust, og með aðkomu spænskra, danskra og belgískra lögregluembætta.

Félagsmenn í Eflingu eru um tveir þriðju starfsmanna á leikskólum í Reykjavík. Margra ára umræða um ástandið í skólunum sýnir það verður grípa til tafarlausra aðgerða segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

Flestallt sem snertir útgerð smábáta við Ísland hefur komið fram í pólitískri umræðu undanfarna mánuði og þá hefur staðið til breyta málaflokkum, auka við, minnka, fella niður eða búa til nýtt. Þetta á við um línuívilnun, skelbætur, byggðakvóta, grásleppu, strandveiðar og eignarhald.

Birt

10. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,