Staða kjarasamninga og angist friðelskandi Norðmanna
Eftir rétta viku rennur út sá frestur sem aðilar atvinnulífsins hafa til að ákveða hvort hin svonefndi stöðugleikasamningur Samtaka atvinnulífsins og margra stærstu stéttarfélaga landsins…
Þingfundur stóð fram til klukkan eitt í nótt þegar fyrstu umræðu um veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra var haldið áfram. Það var gert hlé á þessari umræðu á miðvikudag til að samþykkja sölu á hlutabréfum í Íslandsbanka en hafist var handa við að kryfja þetta eldfima málefni klukkan hálf eitt á hádegi í gær - og umræðan stóð fram yfir miðnætti.
Reynt var að finna lausn á því hvenær ætti að ljúka fyrstu umræðu, bæði í forsætisnefnd og með formönnum þingflokka, að endingu var ákveðið að klára hana á laugardegi. Guðmundur Ari Sigurjónsson og Jens Garðar Helgason tókust á um veiðigjald og laugardagsfundi.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.