Spegillinn

Þáttur 1122 af 1550

Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magússon

Rússlandsher drap minnst níu óbreytta borgara í Úkraínu í morgun, í mestu loftárásum í margar vikur. Íslendingur í Kyiv vaknaði við sprengjugný.

Eftir nokkurra ára ferðabann hafa kínversk stjórnvöld ákveðið leyfa aftur sölu á pakkaferðum til fjörutíu landa, þar á meðal Íslands. Fyrir heimsfaraldur voru Kínverjar fjórði fjölmennasti hópur ferðamanna hér á Íslandi.

Skráðum kynsegin einstaklingum fjölgaði um sjötíu og fimm prósent í Reykjavík árið 2022. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Reykjavíkurborg sem sýna einnig fram á margfalda fjölgun innflytjenda í borginni frá því á tíunda áratugnum.

Stöðug mótmæli eru í Ísrael vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um hæstarétt. Á sama tíma aukast viðsjár milli Ísraelsmanna og Palestínumanna.

Búast við óvenju köldu veðri næstu tíu daga, hiti verður vel undir meðalhita marsmánaðar.

Uppsetningu Íslensku óperunnar á verkinu Madama Butterfly er sögð rasísk í garð fólks af asískum uppruna. Boðað hefur verið til mótmæla við Hörpu á laugardag.

Óvissutímar í Evrópu hrista í mörgum grunnstoðum heimsálfunnar og er Evrópuráðið þar hvergi undanskilið. Ráðið var stofnað fyrir rúmum sjötíu árum síðan og eiga 46 aðildarríki þar sæti. Ísland fer með formennsku í ráðinu - hefur gert það síðan í nóvember á síðasta ári og formennskutímabilinu líkur í maí þegar Lettland tekur við keflinu. En hvað þýðir það? Hafdís Helga Helgadóttir ræðir við Kári Hólmar Ragnarsson lektor í þjóðarétti við lagadeild Háskóla Íslands um Evrópuráð.

Hver höndin virðist vera upp á móti annarri fyrir botni Miðjarðarhafs um þessar mundir. Þúsundir tóku þátt í "degi andspyrnunnar" þar sem mótmælt var umdeildu stjórnarfrumvarpi um breytingar á hæstarétti landsins. Fundir voru haldnir víða um land og margir tóku þátt í trufla umferð á helstu umferðaræðum landsins. Einnig tókst andófsfólkinu loka leið Ben Gurion alþjóðaflugvellinum í Tel Aviv. Með því var ætlunin tefja fyrir brottför Benjamíns Netaníahús forsætisráðherra og eiginkonu hans í opinbera heimsókn til Ítalíu. Umferð komst ekki á nýju fyrr en um fjögurleytið staðartíma. Ásgeir Tómasson tók saman.

Frændur okkar Norðmenn eru hrifnir af vindorku og telja hana álíka arðbæra og vatnsorku. Samt fjölgar stöðugt í hópi þeirra sem mótmæla og vilja ekki sjóndeildarhringurinn þakinn vindmyllum hvert sem litið er. En vindorkan skila hagnaði. Gísli Kristjánsson tók saman.

Frumflutt

9. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,