Spegillinn

Deila Eflingar og SA, deilan um TF-SIF, N4 gjaldþrota.

Spegillinn 2. febrúar 2023

Umsjón: Ásgeir Tómasson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn Útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Dómsmálaráðherra og forstjóri Landhelgisgæslunnar sátu fyrir svörum á fundum utanríkismála- og fjárlaganefnda Alþingis í dag vegna tillögu dómsmálaráðherra um selja TF SIF flugvél Gæslunnar. Formenn nefndanna segja mörgum spurningum ósvarað. Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar segir vélina vera eina þá allra öflugustu í heiminum til leitar, björgunar og almannavarna. Hann segir nauðsynlegt vélin hér til taks tíu mánuði á ári. Haukur Holm ræddi við Georg, Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins, Bjarkeyju Olsen, formann fjárlaganefndar og Bjarna Jónsson formann utanríkismálanefndar.

Ríkissáttasemjari krafðist þess fyrir héraðsdómi í morgun stéttarfélagið Efling afhenti félagatal sitt, svo greiða megi atkvæði um miðlunartillögu hans, sem hann lagði fram í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins 26. janúar. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.

Deila Samtaka atvinnulífsins og Eflingar var bæði fyrir héraðsdómi og Félagsdómi í dag. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, kallar málflutninginn valdaránstilraun. Halldór Benjamín Þorbergsson á von á Félagsdómur dæmi verkföll Eflingarfélaga á Íslandshótelum ólögmæt. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Sólveigu Önnu og Halldór Benjamín.

Sjónvarpsstöðin N4 hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Tilraunir til tryggja framtíð fyrirtækisins báru ekki árangur.

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna ,hefur frestað heimsókn sinni til Kína í næstu viku vegna loftbelgs sem svifið hefur yfir Bandaríkjunum undanfarna daga. Bandaríkin telja kínverskan njósnabelg þar á ferð en Kínverjar segja þetta veðurbelg sem villtist af leið. Róbert Jóhannsson tók saman.

Með endurheimt votlendis er staðbundin losun koltvísýrings skert verulega en með ræktun skógar er koltvísýringur sem er í andrúmsloftinu fangaður og bundinn. Loftslagssjóðurinn Kolviður og Skógrækt ríkisins bjóða upp á síðari kostinn. Ævar Örn Jósepsson sagði frá og talaði við Þröst Eysteinsson skógræktarstjóra og Reyni Kristinsson, framkvæmdastjóra Kolviðar.

Græn bylting stendur fyrir dyrum í Evrópusambandinu, Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kynnti í vikunni áform um einfalda regluverk um græna eða vistvæna atvinnustarfsemi í ESB-ríkjunum og heimila aukinn ríkisstuðning við hann. Með því móti er ætlunin vernda evrópsk fyrirtæki fyrir aukinni samkeppni á þessu svið

Frumflutt

3. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,