Spegillinn

Óveður og miðlunartillaga ríkissáttasemjara

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir

Austan stormur með snjókomu er skollinn á landinu sunnan- og vestanverðu. Appelsínugul viðvörun er í gildi Vestfjörðum suður og austur með landinu allt Djúpavogi höfuðborgarsvæðinu undanskildu. Þar er gul viðvörun fram á nótt en víða er bæði blint og hált. Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður hefur verið á ferðinni á Suðurlandi

Rafmagn fór af í Vík, Landeyjum og Vestmannaeyjum um tíma síðdegis en ætti vera komið á. Rimakotslína 1 er komin í lag, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti. Varaafl var sett í gang í Vestmannaeyjum. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.

Efling hefur lagt fram stjórnsýslukæru til félagsmálaráðuneytis vegna framgöngu ríkissáttasemjara í kjaradeilu félagsins og SA. Krafa ríkissáttasemjara um Efling afhendi félagatal sitt, var tekin fyrir í héraðsdómi í dag. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir mjög ríkan vilja vilji til þess úr því skorið hvernig fara á með þessa miðlunartillögu. Alexander Kristjánsson tók saman.

Minnst 59 létust í sprengjuárás á mosku í Peshawar-borg í Pakistan í dag. Enginn hefur lýst ódæðinu á hendur sér. Forsætisráðherra landsins segir sprengjutilræðið vera árás á Pakistan. Oddur Þórðarson sagði frá.

Vinna er hafin við úttekt á stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi til tryggja betur öryggi íbúa og ferðamanna á svæðinu. Páll Brynjarsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi segir víða gloppur í sambandi og úr því verði bæta. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við hann.

----------

Í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur er ríkissáttasemjara heimilað leggja fram miðlunartillögu er samningaumleitanir bera ekki árangur, honum beri ráðgast við samninganefndir áður en hann ber fram miðlunartillögu. Gísli Tryggvason lögmaður segir engan vafa leika á því ríkissáttasemjari bær til þess setja fram miðlunartillögu en deila megi um hve mikið samráð felist í því ráðgast, það kalli á meira samráð en tilkynna bara um hana. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.

Stjórnvöld í Tyrklandi hafa opnað á þann möguleika Finnar geti sótt um aðild Atlantshafsbandalaginu, NATÓ, en Svíar verði úti í kuldanum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í Recep Tayip Erdogan, forseta Tyrklands, Magnus Christiansson, lektor í herfræðum við sænska varnarmálaháskólann, Bitte Hammargren, sérfræðingur í málefnum Tyrklands og Miðausturlanda. Pekka Haavisto utanríkisráðherra Finnlands og John Bolton, fyrrverandi

Frumflutt

30. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

,