Spegillinn

Miðlunartillaga og skriðdrekar

Miðstjórn ASÍ ræðir um ákvörðun ríkissáttasemjara leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stjórn Eflingar lýsir vantrausti á ríkissáttasemjara.

Hættustigi Almannavarna var lýst yfir á Patreksfirði í dag eftir krapaflóð féll inn í bæinn. Enginn slasaðist í flóðinu, sem kom úr sama farvegi og mannskætt flóð sem varð fyrir fjörutíu árum.

Níu Palestínubúar létust í aðgerðum Ísraelshers á Vesturbakkanum í dag. Heilbrigðisyfirvöld í Palestínu saka Ísraelsmenn um hindra för hinna særðu á sjúkrahús.

Halastjarna sem ekki hefur komið nærri jörðu í rúm 50 þúsund ár sést frá Íslandi næstu daga.

Tugir manna sem mótmæltu ströngum Covid nítján reglum í Kína í nóvember eru enn í haldi lögreglu. Ekki er vitað hvar sumir þeirra eru niðurkomnir.

----

Það dró til tíðinda í kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins í dag. Deilurnar hafa verið í algjörum hnút og Efling sleit viðræðum fyrir rúmum hálfum mánuði. Boðað hafði verið til verkfalls sem beina átti gegn hótelum í Reykjavík, en atkvæðagreiðslu um aðgerðirnar er ekki lokið. Í dag lagði Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari fram miðlunartillögu til reyna höggva á hnútinn. Í grunninn felur tillagan í sér það sama og Starfsgreinasambandið samdi um í lok seinasta árs. Það er afturvirkni til 1. nóvember og sömu prósentuhækkanir og í öðrum samningum. Bæði Eflingu og SA ber skylda til leggja samninginn fram til atkvæðagreiðslu og allir félagsmenn Eflingar eru á kjörskrá, ekki aðeins þeir sem kusu um boðað verkfall, sem voru um 300 manns.

Skiptar skoðanir eru meðal almennings í Þýskalandi um þá ákvörðun Olafs Scholz kanslara senda Úkraínumönnum fullkomna Leopard-2 árásarskriðdreka. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Forsa stofnunarinnar telja 53 af hundraði ákvörðun kanslarans hafi verið rétt. 39 prósent eru alfarið á móti.

Umsjón: Bjarni Rúnarsson.

Tæknimaður: Mark Eldred.

Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Frumflutt

26. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,