Spegillinn

Bráðaþjónusta, heimgreiðslur í Hafnarfirði. lúxushótel við Skálafell

Spegillinn föstudaginn 13. janúar 2023

Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Í dag var gefin út skýrsla um bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Í skýrslunni eru lagðar fram 39 tillögur breytingum og umbótum sem hægt er ráðast í á næstu árum á ýmsum sviðum eins og mönnun, sjúkraflutningum, þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir mikinn feng í þessari nýju skýrslu. Hægt hrinda mörgum þeirra í framkvæmd hratt og örugglega. Bjarni Rúnarsson ræddi við Willum og Jón Magnús Kjartansson, sérfræðing í bráðalækningum leiddi vinnu teymisins sem gerði skýrsluna.

Foreldrar barna í Hafnarfirði sem hafa ekki fengið leikskólapláss geta sótt um heimgreiðslur upp á rúmlega hundrað þúsund krónur á mánuði. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri telur mikilvægt fjölga valkostum foreldra.

Repúblikanar á Bandaríkjaþingi krefjast þess forsetinn Joe Biden opinberi upplýsingar um alla þá sem hafi sótt hann heim í Delaware, þar sem nokkur leyniskjöl hafa fundist undanfarnar vikur.

Bandarískum yfirvöldum hafa borist yfir 350 tilkynningar um fljúgandi furðuhluti síðan í mars 2021. Engar skýringar hafa fundist á um helmingi tilkynninganna.

Reykjavíkurborg og félagið Berjaya Land Berhad hafa gert með sér viljayfirlýsingu um gerð skipulags fyrir Kýrhólaflóa við Skálafell þar sem félagið hyggst reisa fimm stjörnu hótel með heilsulind, baðlóni og tengdri starfsemi. Viljayfirlýsingin var kynnt í borgarráði í gær. Kristín Sigurðardóttir sagði frá.

Sprenging varð í dag í gasleiðslu nærri bænum Pasvalys í norðurhluta Litháen.

Snjór hefur verið fluttur í Geirsnefið við Elliðaárvog í stórum stíl undanförnu til greiða leið vegfarenda höfuðborgarsvæðisins. Svava S. Steinarsdóttir heilbrigðisfulltrúi Reykjavíkurborgar segir reynt draga úr mengun með því leyfa ekki snjónum sturtað beint í sjóinn. Haukur Holm ræddi við hana.

Varaskeifa eða Spare, ævisaga Harrys Bretaprins, hefur slegið öll sölumet. Bókin kom út á þriðjudaginn og á vef The Guardian kemur fram bókin hafi selst í ríflega 400.000 eintökum í Bretlandi á fyrsta sólarhringnum og 1,4 milljónum eintaka ef Bandaríkin og Kanada eru talin með. Bókin seldist upp á fyrsta degi í Pennanum Eymundssyni.

Hálf öld er liðin 14. janúar frá tímamóta tónleikum Elvis Presleys sem sendir voru út um gervihnött frá Hawaii til 36 landa. Talið er allt einn og hálfur milljarður sjónvarpsáhorfenda hafi fylgst með þeim.

Frumflutt

13. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,