Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Mark Eldred
Ríkissaksóknari hefur áminnt Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara vegna ósæmilegrar háttsemi sem þótti ósamrýmanleg starfi hans. Hún tengdist orðum hans á samfélagsmiðlum um hinsegin fólk og hælisleitendur.
Alþýðusamband Íslands hefur sent þrjár tilkynningar til mansalsteymis lögreglunnar það sem af er þessum mánuði. Málum þar sem grunur er um brot á kjarasamningi hefur fjölgað eftir COVID. Þetta kom fram í viðtali Elsu Maríu Guðlaugs Drífudóttur við Sögu Kjartansdóttur, verkefnastjória vinnustaðaeftirlits hjá ASÍ
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna opinberaði skjal í dag um ástæður þess að alríkislögreglan fór í húsleit á heimili Donalds Trumps í Flórída.
Ógn sem stafar af Rússum var ofarlega á baugi í opinberri heimsókn forseta Eystrasaltsríkjanna hingað til lands. Gitanas Nausèda, forseti Litáens, segir stöðu Eystrasaltsríkjanna mjög viðkvæma, því það sé ljóst í hans huga að innrás Rússa í Úkraínu sé aðeins hluti af áformum stjórnvalda í Kreml um landvinninga á næstu árum.
Stjórnmálasamband Íslands og Eystrasaltsríkjanna var formlega framlengt í dag.
Starlink-gervihnattaneti SpaceX, fyrirtækis auðkýfingsins Elons Musk, er ætlað að tryggja símasamband jafnvel á afskekktustu svæðum heimsins, að því er kemur fram í pistli Markúsar Þórhallssonar.
Í nýrri aðgerðaáætlun sem sameinar landgræðslu og skógrækt í fyrsta sinn, er heimatilbúnum vísindum hafnað. Þetta segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar sem bindur vonir við að sameinuð stefna minnki sundrung sem hefur verið á milli stofnananna svo hægt verði að vinna betur að sameiginlegu markmiði þeirra, náttúruvernd. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Auði.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur að langflestir félagsmenn í BSRB séu ánægðir með styttingu vinnutímans sem samið var um í síðustu samningum. Í könnun sem gerð var í vor kom fram að sjö að hverjum tíu eru ánægðir með styttinguna. Hún segir að þátttaka starfsmanna við útfærsluna ráði úrslitum um hvernig tekist hefur til. En ekki síst á vinnustöðum þar sem gengnar eru vaktir hafi verið talað um að styttingin hafi komið hart niður til dæmis í heilbrigðiskerfinu.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Pakistan vegna flóða af völdum monsúnrigninga og bráðnunar jökla. Þau hafa orðið yfir níu hundruð manns að bana. Á þriðja hundrað þúsund íbúðarhús eru ónýt. Yfir níu hundruð eru látnir