Sérfræðingur í rekstri vatnsveitu hjá Veitum segir að enn sé verið að grafa frá lögninni og meta aðstæður. Ekki sé hægt að útiloka að jarðskjálftar hafi átt þátt í að lögnin gaf sig.
Bjarni Geir Viðarsson, skurðlæknir á Landspítala segir mikilvægt að fólk fari vel undirbúið í offituaðgerðir. Slíkar aðgerðir verða sífellt algengari hér á landi en yfir þúsund aðgerðir eru framkvæmdar á ári. Urður Örlygsdóttir talaði við hann.
Liz Truss, nýr forsætisráðherra Bretlands, sat fyrir svörum þingmanna í fyrsta sinn í dag síðan hún tók við embætti. Mikið var rætt um orkumál og útilokaði Truss að hækka skatta á orkufyrirtæki. Oddur Þórðarson tók saman.
Þröstur Jónsson, oddviti Miðflokksins í Múlaþingi telur að ný veglína, sem á að minnka umferð í gegnum miðbæ Egilsstaða og leiða hana suður fyrir bæinn, skerði fallegt byggingarland til framtíðar. Rúnar Snær Reynisson sagði frá og talaði við Jónínu Brynjólfsdóttur, formann umhverfis- og skipulagsnefndar Múlaþings.
Kostuð afþreying verður sífellt algengari að mati Elfu Ýrar Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Slík markaðssetning er ólögleg ef ekki er tekið fram að um auglýsingu sé að ræða. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hana.
------------
Töluvert tjón varð þegar önnur af aðalvatnsæðum Veitna fyrir Reykjavíkurborg brast í síðustu viku. Stór hluti lagnakerfis höfuðborgarsvæðisins er yfir hálfrar aldar gamalt. Hafdís Helga Hauksdóttir ræddi við Sólrúnu Kristjánsdóttur framkvæmdastýru Veitna og Hrefnu Hallgrímsdóttur, forstöðumann hitaveitu.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar hafi engu tapað í Úkraínustríðinu. Hann vísar því á bug að þeir hafi átt upptökin. Pútín kom víða við þegar hann flutti ávarp og sat fyrir svörum á Efnahagsráðstefnu austrænna ríkja, EEF, í Vladivostok, við Kyrrahafsströnd Rússlands. Ásgeir Tómasson tók saman.
Á haustin láta pestir á sér kræla og sóttvarnalæknir hefur gefið út leiðbeiningar um COVID-19-bólusetningar frá miðjum mánuði. Örvunarbólusetningar 60 ára og eldri og fólks í áhættuhópum hefjast í Laugardalshöll 26. spetember segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana.
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.