• 00:01:42Fíflið: Rýni
  • 00:14:12Lansinn e. Lars Von Trier
  • 00:28:27Benni Hemm Hemm

Víðsjá

Benni Hemm Hemm, Lansinn, Fíflið

Benni Hemm Hemm á baki farsælan tónlistarferil, innan þess geira sem oftast er kenndur við popp. Hann var þó ekki allskostar ánægður í hlutverki poppstjörnunnar og þurfti um tíma leita á nýjar slóðir til finna andagiftina. Á óvæntum slóðum, meðal annars hjá miðli, fann hann nýjar leiðir til virkja sköpunarkraftinn, sem oft á tíðum er nær, en okkur grunar. Benni Hemm Hemm var gefa út nýja plötu og ljóðabók og hann verður gestur okkar í dag.

Um liðna helgi var frumsýnt nýtt íslensk verk í Tjarnarbíói, Fíflið eftir Karl Ágúst Úlfsson. Á sýningunni eru áhorfendur kynntir fyrir hirðfíflum allra tíma og heimshluta og rýnt er í samband fíflsins og valdsins. Eva Halldóra Guðmundsdóttir skellti sér á Fíflið og segir frá sinni upplifun.

Við fjöllum líka um Riget, eða Lansann, all sérstakar sjónvarpsseríur sem leikstjórinn Lars von Trier gerði á tíunda áratugnum, en er haldið áfram með nýrri seríu 25 árum eftir síðasta kom út.

Frumflutt

5. sept. 2022

Aðgengilegt til

6. sept. 2023
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.