Víðsjá

Uppgjör við Listahátíð, Codex Serafinianus, Getnaður og jazz

Jazzklúbburinn Múlinn hefur sumardagskrá sína í kvöld með tónleikum á Björtuloftum í Hörpu, og það er Tríó jazzsöngkonunnar Marínu Óskar sem opnar dagskrána. Tríó Marínu Óskar hefur komið víða við, síðast fyrir fullu húsi á Jazzhátíð Garðabæjar, en tríóið skipa ásamt Marínu Ósk þeir Mikael Máni Ásmundsson á gítar og Andri Ólafsson á kontrabassa. Tónlistin hefur fylgt Marínu Ósk frá barnsaldri í Keflavík, hún lærði snemma meta jazz og Chet Baker er hennar helsti áhrifavaldur.

Listahátíð í Reykjavík lauk um helgina. Hátíðin stóð yfir í nær þrjár vikur í ár enda margt uppsafnað eftir tvö ár af heimsfaraldri. Nína Hjálmarsdóttir þræddi viðburði og sýningar hátíðarinnar og segir kannski hafi það mikilvægasta á hátíðinni verið það sem gerðist í minni rýmum, í minni hópum.

Við kynnum okkur 300 síðna bók sem kom út árið 1981 í Róm. Bókin líkist frekar handriti, er eins og súrrealísk alfræðiorðabók sem útskýrir á óþekktu tungumáli veröld sem þú hefur aldrei kynnst fyrr. Þetta er Codex Serafinianus us eftir ítalska listamanninn Luigi Serafini . Texti og kannski fyrst og fremst myndmál Codex Seraphinianus hefur valdið mörgum miklum heilabrotum. Svo miklum heilu félögin hafa verið stofnuð til reyna lesa merkingu úr textanum.

Við fáum líka bókagagnrýni frá Grétu Sigríði Einarsdóttur sem var lesa nýja íslenska skáldsögu, Getnað eftir Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur.

Frumflutt

22. júní 2022

Aðgengilegt til

23. júní 2023
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.