Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að segja hversu stóran eignarhlut fjárfestar eiga í bönkum, þýða annað hér á Íslandi en víðast hvar annars staðar.?
Þessu ætlum við að reyna að svara, í það minnsta velta upp í þætti dagsins.
Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu. Lýður er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag Lýðs á núna 5,5% í Kviku banka, sem gerir hann að fimmta stærsta hluthafa bankans, en einungis fjórir lífeyrissjóðir eiga stærri hluti í bankanum.
Stærstu hluthafar íslenskra banka eru þessir lífeyrissjóðir en þessir sjóðir eru hins vegar ekki mjög virkir hluthafar. Þannig geta einkafjáfestarnir, það er að segja þeir sem ekki eru lífeyrissjóðir, oft og tíðum ráðið talsvert meiru en hluthafallslegur eignarhlutur þeirra virðist bera með sér.
Umsjón: Helgi Seljan
Birt
16. sept. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.