Hópur aðstandenda á Sóltúni ætlar að stefna íslenska ríkinu út af byggingarframkvæmdum við hjúkrunarheimilið. Einar Stefánsson augnlæknir segir að heimilisfólk á Sóltúni eigi rétt á því að fá að verja síðustu mánuðum sínum og árum í friði frá hávaða undan byggingaframkvæmdum.
Aðstandendurnir telja að með framkvæmdunum sé verið að brjóta gegn mannréttindum heimilisfólksins. Framkvæmdirnar eiga að standa yfir í tvö ár. Stefna í málinu verður þingfest í febrúar segir lögmaður hópsins.
Forstjóri Sóltúns harmar málshöfðunina og segir neyðarástand ríkja á Íslandi vegna skorts á hjúkrunarrýmum og byggja þurfi fleiri.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Frumflutt
15. jan. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.