Þetta helst

Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar

Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lög um rannsóknarnefndina voru samþykkt á Alþingi í júní.

Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til 2019 þegar heimilinu var lokað eftir lögreglurannsókn hófst á því vegna meintra brota á lögum um barnavernd. Rannsóknin var felld niður árið 2021 vegna fyrninga á meintum brotum og vegna þess brotin þóttu ekki líkleg til sakfellingar.

Tvö fyrrverandi fósturbörn á Gauksstöðum gagnrýna tímaramma rannsóknarinnar í viðtölum við Þetta helst.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

24. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,