Á Nýbýlaveginum í Kópavogi er matvöruverslunin Fiska þar sem yfirleitt er örtröð síðdegis og um helgar. Verslunin selur matvöru frá öllum heimshornum sem yfirleitt er ekki til í öðrum búðum.
Tekjuaukningin hjá Fisku hefur verið ævintýraleg síðustu ár og hefur verslunin nú sprengt af sér húsnæðið í Kópavogi og er verið að tvöfalda það. Eigandinn, Árni Elvar Eyjólfsson, segir að veltan hafi sexfaldast frá árinu 2020 þegar Fiska opnaði á Nýbýlaveginum í miðjum Covid-faraldrinum.
Saga Árna sem kaupmanns nær aftur til ársins 1994 þegar hann byrjaði að selja fisk frá vinnslu ömmur sinnar og afa í Grundarfirði í Kolaportinu þegar hann var sautján ára menntaskólanemi.
Í þættinum í dag er FISKA heimsótt og rætt er við Árna Elvar og nokkra af viðskiptavinum verslunarinnar.
Umsjón: Ingi Freyr Viilhjálmsson
Birt
27. ágúst 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.