Þetta helst

Sýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir ákvörðun stjórnenda Sýnar hætta með sjónvarpsfréttir gríðarleg vonbrigði.

Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var sendur út þann 9. október árið 1986.

Fjallað er um þessa ákvörðun og hún sett í samhengi við þá ákvörðun Sýn seldi ekki stóran hluta af fjölmiðlum sínum til Símans fyrir 5,25 milljarða króna líkt og til stóð. Sýn skilaði árshlutauppgjöri í síðustu viku sem Björn Steinar Birgisson greinandi ræðir um.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

31. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,