
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu.
Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum vettvangi um hvaða afleiðingar hneykslið muni hafa fyrir fjárfestingar auðmanna frá Abu Dhabi í Bretlandi. Verður eigandi Manchester City, Sheik Mansour, núna svo fúll að hann muni vilja hætta öllum viðskiptum í Bretlandi eða mun hann vilja halda áfram að fjárfesta þar, meðal annars í Manchester City?
Og hverjar eru pólitískar afleiðingar málsins? Andy Burnham forsætisráðherra hefur dregist inn í það með ummælum um að fjárfestarnir frá Abu Dabi séu of stórir til og mikilvægir til að þeir geti yfirgefið Bretland. Önnur lið í deildinni hafa áhyggjur af pólitískum afskiptum af málinu og að rannsóknin og refsing Manchester City verði í skötulíki.
Rætt er við Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa sem er sérstakur áhugamaður um fjármál fótboltafélaga.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.