Þetta helst

Dularfulli uppfinningamaðurinn sem elskaði íslenska hestinn

Þýsk-bandarískur uppfinningamaður, Georg Schrader, sem fann upp frægasta loftventil í heimi dvaldi síðustu þrjú æviárin á Akureyri í upphafi síðustu aldar. Hann bjó á hóteli allan tímann og bað vertinn um sjá til þess alltaf væri til kampavín á hótelinu.

Af hverju Schrader kom til Íslands til byrja með liggur ekki fyllilega fyrir. Ásgeir Jónsson, rithöfundur og seðlabankastjóri, hefur kynnt sér leyndardómsfulla sögu þessa manns.

Schrader lét gott af sér leiða á Íslandi. Hann gaf út bók um íslenska hestinn, aðra um viðskiptafræði og kostaði eina fyrstu matreiðslubókina sem var gefin út á Íslandi. Hann byggði einnig hótel fyrir reiðmenn og hestana þeirra í Gilinu á Akureyri og stóð það í meira en hálfa öld.

Í þætti dagsins er fjallað um sögu Georgs Schraders en hún er háð ákveðnum leyndardómi og er til mynda ekki til nein ljósmynd af honum þó hann hafi sjálfur tekið margar ljósmyndir hér á landi.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

10. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,