Gröf Kristjöna Jónsdóttur Dinse í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði var opnuð í skjóli nætur í júní í fyrra. Duftkerfið með jarðneskum leifum Kristjönu var grafið upp og stór hluti öskunnar var tekinn úr því eftir að kerið hafði verið brotið upp. Kristjana lést í nóvember 2024, rúmlega áttræð að aldri.
Ummerki sáust við leiðið daginn eftir og var málið kært til lögreglu í kjölfarið. Að raska grafarhelgi er brot á almennum hegningarlögum á Íslandi.
Rætt er við barnabarn Kristjönu, Aðalbjörgu Jónsdóttur, um þennan atburð og hvaða afleiðingar hann hafði á fjölskylduna. Samkvæmt upplýsingum frá Kirkjugörðum Reykjavíkur er um að ræða mál sem er án hliðstæðu á Íslandi.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
21. ágúst 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.