Þetta helst

Saga Suður-Afríkumannsins sem lenti í nýnasistum á Íslandi

Í lok árs 1964 kom tæplega þrítugur Suður-Afríkumaður hingað til lands og vildi inngöngu í Háskóla Íslands. Hann hét Johannes Manong og hafði lent í pólitískum ofsóknum í Suður-Afríku á dögum aðskilnaðarstefnunnar samkvæmt fréttum í blöðum frá þessum tíma.

Áður en Johannes Manong kom til Íslands eftir hafa flúið frá Suður-Afríku sendi hann bréf á undan sér til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og bað um aðstoð á Íslandi. Úr varð hann hann fékk herbergi á Stúdentagörðunum í Vatnsmýri og frítt fæði um tíma á meðan hann væri koma sér fyrir á Íslandi.

Til þess kom þó aldrei. Í ársbyrjun 1965 sagði Manong frá því í fjölmiðlum hann hefði orðið fyrir kynþáttaofbeldi frá íslenskum nýnasistum og þess vegna flúið til Svíþjóðar þar sem hann fékk pólitískt hæli um hríð. Í fjölmiðlum á Íslandi var sagt frá því meðan Manong bjó á Stúdentagörðunum hafi verið brenndur Ku-Klux-Klan kross á lóðinni og hann hafi fengið bréf með hakakrossi þar sem á stóð orðrétt: We are back.

Fjallað er um sögu Johannes Manong og rætt við Heimi Pálsson bókmenntafræðing sem man eftir því þegar Manong kom hingað til lands.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

17. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,