Þetta helst

Plastbarkalæknirinn sakfelldur í Svíþjóð

Sænskir dómstólar sakfelldu ítalska skurðlækninn Paolo Macchiarini - plastbarkalækninn - á fimmtudaginn. Hann hlaut skilorðsbundinn dóm fyrir afar umdeildar plastbarkaígræðslur. Læknirinn boðaði nýja tækni í líffæraígræðslum sem hefði getað gjörbylt læknavísindunum - hefði hún bara virkað. Og á meðan sumir - eða kannski nokkuð margir - halda því fram Macchiarini hafi af ásetningi gert aðgerðirnar víðsvegar um heiminn, vitandi tæknin virkaði ekki, vilja einhverjir aðrir meina hann hafi verið hugsjónamaður sem virkilega trúði og vonaði tæknin gæti virkað og bjargað mannslífum og læknisfræðinni. Við skoðum málið í þætti dagsins.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

20. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,