Þetta helst

Rafmagnið sem endurræsir hausinn

Landspítalinn sinnir hátt í 50 manns árlega sem þjást af alvarlegu þunglyndi, geðhvörfum og stundum öðrum sjúkdómum, með raflækningum. Þetta er besta úrræðið fyrir vissan hóp. Örlitlum rafstraumi er beint inn í heila sjúklinganna til framkalla flog. sem umsjónarlæknirinn segir eins konar endurræsingu. Mörgum þykir tilhugsunin um rafstraumur í heilann geti verið lítið annað en einhvers konar gamaldags-pyntingaraðferð á fólki með geðraskanir. En það er alls ekki svo. Meðferðin skilar góðum árangri í yfir 80 prósent tilfella. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Dr. Astrid Freisen, geðlækni á Landspítalann, um sögu raflækninga, aukaverkanirnar, árangurinn, Gaukshreiðrið og mikilvægi raflækninga í nútímanum.

Frumflutt

20. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,