Þetta helst

Þýskt stórfyrirtæki kaupir þrjá dýraspítala á Íslandi

Þýska stórfyrirtækið Altano keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi.

Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Altano á í dag meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn. Fyrirtækið er í eigu svissnesks fjárfestingarsjóðs.

Af hverju hefur Altano áhuga á Íslandi og dýraspítölum á Íslandi? Einhverjir bændur á Norðurlandi hafa spurt sig þessu. Rætt er við dýralækninn Gest Pál Júlíusson um Altano en hann er einn af þeim dýralæknum sem hefur selt hlut sinn í dýraspítala til þýska fyrirtækisins.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

20. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,