Tekjur rithöfunda rýrna
Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama…
Í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands kemur fram að skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi hafi vaxið síðustu misseri og að merki séu um vaxandi vanskil, þótt þau séu enn tiltölulega lítil. Þá er það nefnt að lánveitendur þurfi að gæta að aukinni áhættu í geiranum. Húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og lengur taki að selja eignir, sérstaklega nýjar íbúðir.
Rætt er um þessa stöðu við Moniku Hjálmtýsdóttur, formann Félags fasteignasala, Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra hjá Samtökum iðnaðarins, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing hjá HMS.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.