Þetta helst

Rifrildið um jarðir og laxveiðiár Jim Ratcliffes

Í byrjun vikunnar kom upp umræðu um enska fjárfestinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi sem landeiganda og leigutaka laxveiðiáa.

Þetta var eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir tjáði sig um hann í færslu á Facebook. Þar talaði hún meðal annars um hvað Ratcliffe væri stór jarðaeigandi á Íslandi.

Bubbi Morthens tónlistarmaður blandaði sér í þessa umræðu og hefur hann sterkar skoðanir á Ratcliffe um hvernig eigi að minnka eða stöðva umsvif hans á Íslandi.

Rætt er við Bubba og Gísla Ásgeirsson, talsmann Ratcliffes á Íslandi og framkvæmdastjóra fyrirtækisins Six Rivers, sem hefur allt aðra sýn en Bubbi.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,