
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur fjallað ítarlega um þessi meintu brot.
Ölgerðin er orðið að risa á drykkjarvöru- og matvörumarkaði á Íslandi. Sala áfengra drykkja frá Ölgerðinni nemur um helmingi af allri sölu áfengis hjá ÁTVR. Þetta kemur fram í sölutölum frá ÁTVR fyrir síðasta ár. 50,3 prósent af öllum seldum áfengiseiningum sem ÁTVR selur og 47 prósent af öllum seldum lítrum koma frá Ölgerðinni.
Er viðskiptasamband Ölgerðarinnar og ÁTVR óeðlilegt eða ekki? Rætt er Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur forstjóri ÁTVR um þetta. Einnig er rætt við Arnar Sigurðsson, vínkaupmann í Santé, um fyrirferð Ölgerðarinnar á áfengismarkaði og innkaupakerfi ÁTVR.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.