Þetta helst

Einkaþotur: Bráðmengandi bruðl eða sjálfsagður munaður ríkra?

Það er einkaþotuskortur í heiminum. Reykjavíkuflugvöllur er fullur af þeim, enda lenda þar um tvö hundruð stykki á mánuði þegar mest er og gert er ráð fyrir nærri því 900 einkaþotur lendi þar í ár. Ef eigendur, eða leigjendur, einkaþotnanna vilja staldra hér við á landinu í einhvern tíma þarf greiða stæðisgjald - það er ókeypis fyrstu sex tímana, en svo byrjar mælirinn tikka. En einkaþotustöðumælagjaldið á Íslandi er miklu, miklu lægra heldur en gengur og gerist á hinum Norðurlöndunum.

Borgarfulltrúi VG vill þessar þotur burt af vellinum, þær eru mengandi og valda ónæði. Bandarískir markaðssérfræðingar segja einkaþotumarkaðinn sjóðheitan - það hafa aldrei fleiri slíkar þotur verið í umferð og - og færri komast um borð en vilja. Notaðar þotur eru meira segja farnar rokseljast. Þetta helst skoðar þennan þægilega, mengandi og óhemjudýra ferðamáta sem hefur aldrei verið jafn vinsæll.

Frumflutt

4. ágúst 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,