Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur
Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar segir Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst…
Samtal hjónanna Lotta Maríu Ellingsen og Hans Tómasar Björnssonar við eldhúsborðið heima hjá þeim leiddu þau af stað í þróun á snjallforriti sem vonandi getur greint erfðasjúkadóma úr fingraförum fólks. Þau eru bæði prófessorar við Háskóla Íslands, hún er sérfræðingur í læknisfræðilegum myndgreiningum og hann í barnalækningum og erfðafræði. Nú hafa rannsóknir þeirra og samstarf við aðra vísindamenn getið af sér lofandi niðurstöður, ritrýnda vísindagrein og einkaleyfi á tækninni.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.