Þetta helst

Blóðið er besta vitnið

Ragnar Jónsson hefur starfað í íslensku lögreglunni í meira en þrjá áratugi. Undanfarin 23 ár hefur hann þó sérhæft sig í tilteknum kima lögreglustarfsins: blóði. Hann er blóðferlafræðingur hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann skoðar hvernig blóð hagar sér og skilur söguna sem það skilur eftir sig. Nýverið tók hann við stöðu forseta Evrópudeildar alþjóðasamtaka blóðferlafræðinga, sem telur um 600 sérfræðinga, og segir tengslin, samtalið og leitina sannleikanum gera það verkum hann er enn með stjörnur í augunum þegar hann lýsir því sem hann vinnur við. Sunna Valgerðardóttir talar við Ragnar um blóð, glæpi og vísindi í þætti dagsins.

Frumflutt

28. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,