Nærri 300 milljóna króna verktakagreiðslur til félaga tveggja kennara á Bifröst
Tvö eignarhaldsfélög og eitt markaðsfyrirtæki í eigu tveggja lektora í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst hafa fengið samtals rúmlega 295 milljónir króna í verktakagreiðslur frá skólanum síðan 2014. Þetta eru verktakagreiðslur fyrir vinnu við Háskólann á Bifröst á tímabilinu 2014 til 2024.
Lektorarnir sem um ræðir heita Haraldur Daði Ragnarsson og Ragnar Már Vilhjálmsson. Þeir hafa verið talsvert í umræðunni um stöðu Háskólans á Bifröst síðastliðinn mánuð. Þeir Haraldur og Ragnar voru tveir af þeim starfsmönnum skólans sem voru kærðir til siðanefndar skólans fyrir meint brot á siðareglum skólans í akademískum skrifum sínum. Siðanefndin hreinsaði þá af ásökunum um meint brot en sagði líka að ástæða hefði verið til fyrir nefndina að kanna málið.
Mánaðarlöng umræða um stöðu rektors skólans, Margrétar Jónsdóttur Njarðvík, leiddi til þess sagði af sér í beinni útsendingu í viðtali í Kastljósþætti á mánudaginn í síðustu viku eftir að niðurstaða siðanefndar lá fyrir.
Deilurnar í skólanum hafa hins vegar snúist um annað og meira en þessa siðanefndarkæru. Síðastliðið ár hefur verið tekist á um það í skólanum hvort réttmætt hafi verið af fyrrverandi rektor að banna verktakagreiðslur til fastráðinna kennara við skólann í ársbyrjun í fyrra.
Fjallað er um ástæður og bakgrunn þessara verktakagreiðslna og þá ólgu sem hefur verið í Háskólanum á Bifröst.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
18. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.