Þetta helst

Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræðir Elda og hamfarir á Reykjanesskaga

- Það er óábyrgt láta Sigríði Hagalín flytja fréttir af mögulegu gosi þar sem hún spáði fyrir hamförum í bókinni Eldarnir, ástin og aðrar hamfarir, þar sem eldsvirkni byrjar á Reykjanesi sem leiðir til alls konar hörmunga - skrifar áhyggjufullur samfélagsmiðlanotandi, en líklega í léttum tón. Sigríður Hagalín Björnsdóttir er ein reyndasti fréttamaður RÚV og það vill svo til hún er líka rithöfundur sem hefur meðal annars skrifað skáldsögu um eldsumbrot á Reykjanesskaganum. En það vill líka svo til fjórum mánuðum eftir bókin hennar kom út, rofnaði Reykjanesskaginn og hefur varla gróið síðan. Hamfarir eru orðnar, þó hinar óhugsanlegu hamfarir, það gjósi í Grindavík, séu enn ekki orðnar og verði vonandi aldrei. Sigríður hefur flutt fréttir af Grindavík undanfarna daga, hitt fólkið við þessar fáránlegu aðstæður og horft ofan í jörðina þar sem kvikan kraumar. Sunna Valgerðardóttir ræðir við hana í þætti dagsins.

Frumflutt

15. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,