Þetta helst

Mariupol öll á valdi Rússa og nýjustu vendingar í stríðinu

Innrás Rússa í Úkraínu hófst 24. febrúar og hefur því staðið yfir 82 daga, eða um tólf vikur. Strax á fyrsta degi innrásarinnar hófust sprengjuárásir rússneska hersins á hafnarborgina Mariupol í suðurhluta landsins, og daginn eftir hélt fótgöngulið í átt borginni. Borgin var svo umkringd 1. mars og síðan þá hafa staðið yfir linnulaus átök í borginni. Rússneski herinn sprengdi meðal annars leikhús í borginni í loft upp um miðjan síðasta mánuð, þar sem almennir borgarar leituðu skjóls. minnsta kosti þrjú hundruð manns létust í þeirri árás einni saman. Innrásarliðið lét sprengjum, flugskeytum og stórskotahríð rigna yfir borgina og engu hlíft - hvorki íbúðahverfum, sjúkrahúsum nokkru öðru. Þá sprengdi rússneski herinn upp barnaspítala og meðgöngudeild í borginni. Í þessari borg, sem áður taldi um hálfa milljón íbúa, er talið um hundrað þúsund manns séu enn eftir. Við fjöllum um Mariupol og framtíð átakana í Úkraínu í dag, og ræðum við Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðing í málefnum Rússlands.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

17. maí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,