Þetta helst

Ungt fólk, TikTok og baráttan um Bessastaði

Kosningabaráttan um Bessastaði var háð í fjölmiðlum, úti á meðal fólks og á samfélagsmiðlum. Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands var áberandi á Tik Tok og fleiri samfélagsmiðlum auk þess sem framboðið rak sérstaka kosningamiðstöð fyrir ungt fólk.

Auður Ína Björnsdóttir, nemi í sálfræði og dóttir Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og Björns Skúlasonar, tók virkan þátt í kosningabaráttunni auk bróður síns Tómasar Bjarts, en systkinin stunda háskólanám í New York.

Eyrún Magnúsdóttir hitti Auði Ínu á heimili fjölskyldunnar á Klapparstíg, skömmu eftir hið klassíska ávarp nýs forseta af svölunum heima. Hún segir áherslu hafa verið lagða á það skapa stemningu fyrir kosningunum hjá ungu fólki.

Frumflutt

3. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,