Þetta helst

Grindvísk fjölskylda undirbýr jól í útlegð

Í þessum þætti heimsækir Þóra Tómasdóttir grindvíska fjölskyldu sem undirbýr jólin í einskonar útlægð frá heimili sínu. Hjónin Lóa Kristín Ólafsdóttir og Bergur Hinriksson hafa komið sér fyrir ásamt sonum sínum tveimur, þeim Ara Berg 11 ára og Hinriki Hrafni 19 ára, í nýbyggingu í Garðabæ. Þar er lífið allt öðruvísi en í stóra húsinu þeirra í náttúruparadísinni í Grindavík. Þau bera sig vel, halda þétt hvert utanum annað og eru staðráðin í gera það besta úr aðstæðunum.

Frumflutt

20. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,