Þetta helst

Anton Sveinn McKee og staða afreksíþróttafólks

Lengi hefur verið ljóst staða afreksíþróttafólks hér á landi er erfið. Þau sem keppa á efsta stigi vissulega styrki en þeir eru lágir og íþróttafólk þarf gjarnan treysta á mamma eða pabbi geti hlaupið undir bagga.

Anton Sveinn McKee segir mömmu sína hafa í gegnum árin verið sinn helsta stuðningsmann, en það ekki eðlileg staða þurfa reiða sig á stuðning ættingja til geta verið í fremstu röð. Hann segist þakklátur fyrir styrki og stuðning sem hann hefur fengið, meðal annars frá ÍSÍ, en styrkjakerfið þurfi bæta ef íslenskir afreksíþróttamenn eigi geta keppt við þá bestu í heimi.

Afreksíþróttafólk lýkur sínum ferli án þess eiga nokkur vinnumarkaðstengd réttindi, enda er stuðningur mest í formi styrkja en ekki launa. Anton, líkt og fleira afreksfólk, á engin lífeyrisréttindi og hann er heldur ekki gjaldgengur í íslensku heilbrigðiskerfi, heldur þarf greiða fullt verð hér á landi ef hann veikist eða meiðist þar sem hann hefur æft í Bandaríkjunum undanfarin ár.

Eyrún Magúsdóttir fjallar um nýbirta skýrslu um breytingar á umgjörð afreksíþrótta hér á landi og aukinn stuðning og ræðir við Anton Svein McKee um hans sýn á þessi mál.

Frumflutt

23. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Þættir

,