Þetta helst

Skotárásir I: Skotárásin í Uvalde í Texas

Um miðjan maí myrti átján ára maður tíu og særði þrjá í stórmarkaði í Buffalo í New York í Bandaríkjunum, í árás sem lögregluyfirvöld lýsa sem hreinum og klárum rasískum hatursglæp. Árásarmaðurinn var handtekinn á vettvangi. Skotárásin var þá ein mannskæðasta í Bandaríkjunum það sem af er ári - jafnvel þótt hún væri númer 198 á þeim rúmlega nítján vikum sem þá voru liðnar af árinu. Það átti þó eftir breytast viku síðar. Þann tuttugasta og fimmta maí myrti annar átján ára árásarmaður nítján börn og tvo kennara í skotárás í skóla fyrir börn á aldrinum fimm til ellefu ára í bænum Uvalde í Texas. Á annan tug særðust. Árásarmaðurinn var skotinn til bana á vettvangi. Árásin í Uvalde er mannskæðasta frá því tvítugur árásarmaður myrti tuttugu og sex í Sandy Hook-grunnskólanum í Connecticut fyrir tíu árum. Tuttugu fórnarlambanna voru sex og sjö ára börn. Á næstu dögum förum við yfir skotárásir, áhrif þeirra og afleiðingar, vopnasölu og -aðgengi, kenningarnar um hvers vegna þær eiga sér stað og hvað er hægt gera í Þetta helst. En fyrst fjöllum við um Texas. Katrín tekur við.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

2. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,