Vilja að Þorgerður Katrín leysi ræðismann Íslands undan skyldum sínum
Samtök aðgerðasinna sem berjast gegn herforingjastjórninni í landinu Myanmar í Asíu vilja að íslensk stjórnvöld afturkalli nýlega skipun ræðismanns fyrir Ísland í landinu.
Ræðismaðurinn heitir Ko Ko Latt og telja samtökin að hann vinni með herforingjastjórninni og hjálpi til við að fjármagna. Samtökin kalla sig Justice for Myanmar eða Réttlæti fyrir Myanmar og sendu þau bréf með þessari kröfu til utanríkisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þann 27. mars.
Í svari frá aðstoðarmanni utanríkisráðherra, Ingileifar Friðriksdóttur, kemur fram að bréfið hafi borist í síðustu viku og að málið sé í skoðun í utanríkisráðuneytinu.
Fjallað er um þessa kröfu gegn íslenskum stjórnvöldum í sögulegu ljósi valdaránsins í Myanmar árið 2021 og borgarastríðsins sem geisað hefur þar síðastliðin ár.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
1. apríl 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.