Þetta helst

Séra Friðrik og eldrauðu flöggin

- Náðargáfum fylgja freistingar, því hættulegri sem þær eru duldari. Séra Friðrik hlaut náðargáfu persónulegra töfra í óvenjulega ríkum mæli. Hann vissi um það vald sem hann gat haft yfir öðrum. Það er freisting slíks manns, það er freisting leiðtogans valdið yfir öðrum, aðdáun og þjónslund fylgismanna verði takmark, óaðgreinanlegt frá málstað. Hann þarf ráða. Verða miðdepill. Stjaka til hliðar. Eiga sinn flokk. Séra Friðrik var hafinn yfir slíkt. Því hann var hafinn yfir sjálfan sig. Hann bar fyrir brjósti alla drengina sína, tímanlega og eilífa velferð þeirra. Það var leyndarmál séra Friðriks. -

Þetta sagði Sigurbjörn Einarsson biskup við útför trúbróðurs síns, Friðriks Friðrikssonar, í mars 1961. En sagnfræðingurinn Guðmundur Magnússon hefur leitt í ljós þessi meinti heilagleiki var alls ekki eina leyndarmál séra Friðriks, þó sum segja óeðlilegan áhuga hans á drengjum ætti ekki átt hafa komið neinum á óvart. Sunna Valgerðardóttir fjallar um leyndarmál Friðriks Friðrikssonar, prests og æskulýðsleiðtoga, í þætti dagsins.

Frumflutt

27. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,