Þetta helst

Hundrað kíló af kókaíni

Kókaín, og stór og smá mál því tengdu, eru á dagskrá Þetta helst í dag. Íslensk lögðu hald á hundrað kíló af kókaíni í gámi sem var reynt smygla hingað til lands í gegn um Sundahöfn og er þetta lang, lang mesta magn af þessu rándýra dópi sem hefur fundist hér á landi. Fyrsta málið sem var kallað stóra kókaínmálið snerist um eitt kíló. Svo kom annað stórt kókaínmál sem snerist um 16. Og í vikunni tilkynnti lögreglan nýjasta og langstærsta kókaínmál Íslandssögunnar. Hundrað kíló af tiltölulega hreinu efni, falið vandlega í gámi. Fjórir eru í haldi, ekki góðkunningjar lögreglunnar, en eiga líklega töluverða fangelsisvist fyrir höndum verði þeir fundnir sekir. Götuverðið á efnunum getur hlaupið á milljörðum króna.

Frumflutt

19. ágúst 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,