Þetta helst

Ólystugur en víðförull bólfélagi

Fjallað er um hvimleiðan bólfélaga í þætti dagsins. Bólfélaga sem athafnar sig nóttu til þegar rekkjunautar hans eru í fastasvefni. Hann stingur á þá göt og sýgur sjöfalda þyngd sína, finnur sér svo góðan samastað í rifum rúmsins, fjölgar sér og heldur svo iðju sinni áfram. Og það er hægara sagt en gert losna við hann. Og í París hefur geisað það sem fjölmiðlar kalla faraldur, þessa óboðna gests. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Matthías Alfreðsson skordýrafræðing og Steinar Smára Guðbergsson, Meindýraeyði Íslands, um veggjalýs (bed bugs) í Þetta helst.

Frumflutt

6. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,